Tökum törnina

Þegar allt fer á fullt skiptir máli að hafa sterkan samstarfsaðila með sér í törninni. Í nýrri herferð Póstsins fáum við innsýn í hvernig fyrirtækjaþjónustan tekur törnina með Blush, Bauhaus, Spilavinum, Maí og Ormsson. 

Hero
Hero

hugmyndavinna

framleiðsla

grafísk hönnun

hreyfigrafík

textasmíði

Hjá flestum fyrirtækjum koma tímabil þegar allt fer á fullt; pantanir hrannast upp, lagerinn tæmist hraðar og álagið eykst verulega. Þá skiptir máli að hafa traustan samstarfsaðila sem kemur vörunum til viðskiptavina á hraðan og öruggan hátt.

Fyrirtækjaþjónusta Póstsins vildi sýna hvernig öflugir innviðir, sveigjanleg þjónusta og stærsta dreifikerfi landsins hjálpa fyrirtækjum að komast í gegnum annasömustu tímabil ársins.

Herferðin er framhald af fyrri herferð Póstsins og í þetta sinn fáum við innsýn í starfsemi Blush, Bauhaus, Spilavina, Maí og Ormsson.


Fyrirtækin eru með ólíkar vörur, þjónustur og þarfir. En þegar álagið eykst eru væntingar viðskiptavinanna ávallt þær sömu: Að afhending á pökkunum sé einföld, örugg og áreiðanleg. Þess vegna er fyrirtækjaþjónusta Póstsins reiðubúin að bretta upp ermar og taka törnina.

Þórunnartún 2
105 Reykjavík

TVIST á Instagram
TVIST á Facebook

Hefur þú áhuga á samstarfi?

Við erum alltaf til í gott kaffispjall

© Tvist ehf.

Allur réttur áskilinn